Notendaskilmálar korta


Skilmálar vefverslunar Dalvíkurbyggðar  vegna Íþróttamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar
Velkomin í vefverslun Íþróttamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar sem er í eigu og rekstri  Dalvíkurbyggðar kt. 620598-2089, Ráðhúsi, 620, Dalvík.   VSK nr. 5921.

Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Dalvíkurbyggð.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Dalvíkurbyggðar samþykkir þú þessa skilmála.


1.    SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:

  • Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
  • Skiptakort eru kort með inneign á ákveðinn fjölda komu í Íþróttamiðstöðina.
  • Tímabilskort eru kort sem gefið eru út með nafni og kennitölu einstaklings og eru aðeins til einkanota fyrir þann einstakling.
  • Sundkortin veita aðgang að sundlaug Íþróttamiðstöðvar.
  • Líkamsræktarkort veita aðgang í líkamsrækt og sundlaug Íþróttamiðstöðvar.
  • Kortin eru sjálfsafgreiðslukort

2.    NOTENDAREGLUR

  • Skiptakort:
    • Hægt er að kaupa skiptakort með inneign á ákveðinn fjölda koma  í Íþróttamiðstöðina.
    • Fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
    • Skiptakort gilda ekki fyrir hópa.
  • Tímabilakort:
    • Eru kort sem gefin er út fyrir ákveðinn einstakling og eru til einkanota fyrir þann einstakling eingöngu.
    • Eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, elli- og örorkulífeyrisþega og aðra skilgreinda hópa samkvæmt gildandi gjaldskrá hverju sinni.
    • Kortið veitir ótakmarkaðar  komur yfir fyrirfram skilgreint tímabil í samræmi við gildistíma.

3.    GJALDSKRÁ

Dalvíkurbyggð gefur árlega út gjaldskrár fyrir stofnanir og þjónustu Dalvíkurbyggðar. Gjaldskrár hvers árs eru aðgengilegar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvikurbyggd.is.  Gjaldskár eiga einnig að vera aðgengilegar á þjónustustað eftir því sem hægt er að koma því við.

4.    SKILAREGLUR

Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilakort. Ekki er hægt að leggja inn kort tímabundið. Ekki er boðið upp á framselja tímabilakort á aðra kennitölu.

5.    VANEFNDIR, LOKUN KORTA

Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Dalvíkurbyggð heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.

6.    GREIÐSLUVANDAMÁL

Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og stöðva pöntunina.

7.    MISNOTKUN Á KORTUM

Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota tímabilakort sem skráð er á annan einstakling hefur Dalvíkurbyggð heimild til þess að loka viðkomandi korti.

8.    PERSÓNUUPPLÝSINGAR

Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.